Markmið

Markmið

Á vegum landskjörstjórnar og skrifstofu Alþingis er unnið að almennri upplýsingagjöf um kosningamál, einkum um Alþingiskosningar. Tilgangur er í hnotskurn eftirfarandi:

  • Að safna upplýsingum um fyrirkomulag kosninga svo og um nýmæli og þróun í þessum efnum í grannlöndunum. Markmiðið er að stjórnvöld og stjórnmálamenn geti leitað hugmynda að hugsanlegum breytingum eða lagfæringum. Hliðarverkefni er að vakta kosningar í kringum okkur og upplýsa um kosningakerfi viðkomandi landa.
  • Að gera sem mest af efni um kosningar til Alþingis aðgengilegar á stafrænu formi handa almenningi og fyrir fræðimenn. Jafnframt að hafa tiltækar reiknivélar til vissrar greiningar á úrslitunum og úthlutunar á þingsætum.
  • Að greina úrslit og úthlutun þingsæta með tölulegum hætti og draga saman sögu Alþingiskosninga að því leyti. Ekki er stefnt að stjórnmálafræðilegri greiningu.

Árangurinn verður kynntur á þessari vefsíðu eftir því sem vinnunni vindur fram.







Efni á þessari síða og undirsíðum hennar er á ábyrgð ritstjóra og túlkar ekki endilega viðhorf landskjörstjórnar.

Fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um efni þessarar síðu skal beint til Þorkels Helgasonar.

Tölvupóstfang: thorkellh@althingi.is

Sími: 893 0744



Þetta vefsvæði byggir á Eplica