Reiknivélar til úthlutunar sæta
Úthlutun sæta í kosningum til Alþingis
Hér má nálgast reiknisíður eða forrit til úthlutunar á sætum í kosningum til Alþingis. Úthlutunin, sem byggir á gildandi lögum um kosningar til Alþingis, lögum nr. 24/2000, er sýnd skref fyrir skref og niðurstöður sundurliðaðar og greindar með vissum hætti. Forritin eru skrifað í Excel. Leiðbeiningar eru gefnar um notkun þeirra.
Miðað er við þá flokka sem buðu fram við kosningarnar 2009. Bæta má við þremur nýjum flokkum ef vill. Boðið er upp á þrjár gerðir af úthlutunarforritinu. Munurinn á þeim er eingöngu sá hvort og hvernig er tekið tillit til færslu þingsætis frá Norðvesturkjördæmis til Suðvestarkjördæmis sem tekur gildi við næstu þingkosningar sem verða haldnar í síðasta lagi í lok kjörtímabilsins vorið 2013.
Í fyrstu gerð forritsins hefur þingsætið ekki verið fært og má því segja að með þessu forriti megi skoða úrslit síðustu kosninga sem voru haldnar í apríl 2009 í bakspeglinum:
Uthlutun2009med2009 (Excel)
Í annari gerðinni hefur umrætt sæti verið fært frá Norðvesturkjördæmi til Suðvesturkjördæmis og skiptast þá sætin eins og í kosningunum 2013 (eða fyrr). Samanburður er aftur á móti gerður við úthlutunina eins og hún var 2009, þ.e. að ófærðum sætum:
Uthlutun2013med2009 (Excel)
Í þriðju gerðinni er skrefið stigið til fulls. Þingsætið hefur þegar verið flutt á milli kjördæmanna og úthlutun á grundvelli spátalna notandans er borin saman við úthlutun sæta samkvæmt úrslitunum 2009 en nú að teknu tilliti til hins færða sætis:
Uthlutun2013med2013 (Excel)
Ýmist má spá um fylgi einstakra kjördæmislista eða færa inn spá um landsfylgi flokka, eða blanda þessu saman. Jafnframt má tilgreina að flokkur bjóði ekki fram í einstökum kjördæmum. Forritið skáldar í eyðurnar fylli notandinn ekki allt út. Er þá að mestu byggt á því mynstri sem rekja má til kosninganna 2009. Kosningaþátttaka er að grunni til sú sama og 2009 en notandi getur fært inn eigin skoðanir í þeim efnum.
Aðgætt er hvort spá notandans um fylgi flokka og einstakra lista sé sjálfri sér samkvæm að því leyti að samtölur eftir kjördæmum annars vegar og flokkum hins vegar stemmi. Sé ekki svo tekur forritið að nokkru leyti völdin af notandanum og samræmir tölur en með eðlilegum hætti.
Forritin úthluta síðan þingsætum á grundvelli spár notandans um fylgi lista og flokka (eftir fyrrgreinda samræmingu). Úthlutunin er sýnd í smáatriðum, bæði úthlutun kjördæmissæta og jöfnunarsæta. Þá er niðurstaðan greind, svo sem með því að mæla tölu atkvæða að baki þingsæta.
Notendur eru beðnir um að senda ábendingar og athugasemdir varðandi reiknisíðurnar til Þorkels Helgasonar með tölvupósti á thorkellh@althingi.is eða í síma 893 0744.
