Tilkynningar

Niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar lýst

Niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um gildi laga nr. 13/2011, sem fram fór laugardaginn 9. apríl 2011, var lýst á fundi landskjörstjórnar 15. apríl. Engar kærur bárust um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar. Samkvæmt endanlegum skýrslum yfirkjörstjórna varð niðurstaðan eftirfarandi:

 

Kjósendur á kjörskrá 232.422
Gild atkvæði 172.669
Ógild atkvæði 2.445
          þar af auðir 2.039
          þar af aðrir ógildir 406

 

Gild atkvæði skiptust þannig eftir því hvernig kjósendur svöruðu spurningunni: „Eiga lög nr. 13/2010 að halda gildi?:

 

Já, þau eiga að halda gildi 69.462
Nei, þau eiga að falla úr gildi 103.207

 

Þar sem meiri hluti gildra atkvæða féllu þannig að synja beri lögunum samþykkis (59,77%) skulu þau falla úr gildi í samræmi við 3. málslið 26. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944.







Erindi til landskjörstjórnar

Aðsetur landskjörstjórnar er í Kirkjustræti 8b.

Ritari landskjörstjórnar er Þórhallur Vilhjálmsson.

Tölvupóstfang: thorhallurv@althingi.is

Sími: 563 0933 / 692 3101

Póstfang:
Landskjörstjórn,
b.t. Þórhalls Vilhjálmssonar,
Alþingi við Austurvöll,
150 Reykjavík.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica