Tilkynningar

Tilkynning um lista sem verða í framboði við alþingiskosningar 25. apríl 2009.

Á fundi landskjörstjórnar kl. 15.00 í dag föstudaginn 17. apríl var í samræmi við 44. gr. laga um kosningar til Alþingis gert kunnugt um þá lista sem verða í bornir fram í alþingiskosningunum 25. apríl næst komandi.

Eftirtaldir listar verða bornir fram í öllum kjördæmum landsins við komandi alþingiskosningar:

B-listi borinn fram af Framsóknarflokknum.

D-listi borinn fram af Sjálfstæðisflokknum.

F-listi borinn fram af Frjálslyndaflokknum.

O-listi borinn fram af Borgarahreyfingunni – Þjóðin á þing.

P-listi borinn fram af Lýðræðishreyfingunni.

S-listi borinn fram af Samfylkingunni.

V-listi borinn fram af Vinstri hreyfingunni – grænu framboði.






Erindi til landskjörstjórnar

Aðsetur landskjörstjórnar er í Kirkjustræti 8b.

Ritari landskjörstjórnar er Þórhallur Vilhjálmsson.

Tölvupóstfang: thorhallurv@althingi.is

Sími: 563 0933 / 692 3101

Póstfang:
Landskjörstjórn,
b.t. Þórhalls Vilhjálmssonar,
Alþingi við Austurvöll,
150 Reykjavík.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica