Tilkynningar

Tilkynning frá landskjörstjórn

Fundur um úthlutun þingsæta

Landskjörstjórn kemur saman til fundar mánudaginn 4. maí 2009, kl. 17 til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir almennar alþingiskosningar sem fram fóru hinn 25. apríl sl.

Hér með er umboðsmönnum þeirra stjórnmálasamtaka sem buðu fram við alþingiskosningarnar gefinn kostur á að koma til fundarins, sem haldinn verður á 2. hæð í Austurstræti 8—10, Reykjavík, húsnæði nefndasviðs Alþingis. Gengið er inn frá Vallarstræti. 







Erindi til landskjörstjórnar

Aðsetur landskjörstjórnar er í Kirkjustræti 8b.

Ritari landskjörstjórnar er Þórhallur Vilhjálmsson.

Tölvupóstfang: thorhallurv@althingi.is

Sími: 563 0933 / 692 3101

Póstfang:
Landskjörstjórn,
b.t. Þórhalls Vilhjálmssonar,
Alþingi við Austurvöll,
150 Reykjavík.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica