Tilkynningar

Mörk kjördæmanna í Reykjavík við þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars 2010.

Við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars um skilmála ríkisábyrgðar á láni út af ICESAVE-samningunum, eiga mörk kjördæma að vera þau sömu og við síðustu alþingiskosningarnar, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 4/2010. Á fundi landskjörstjórnar 5. febrúar var samþykkt ályktun um að auglýsing nr. 346/2009, sem fjallar um mörk kjördæmanna tveggja í Reykjavík við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009, skuli fylgt við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Gildir það einnig um fyrirmæli hennar um hvar mörkin skuli vera í hverjum mánuði, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 24/2000, en þau ráða því hvar þeir, sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík en búa erlendis eða eru óstaðsettir í hús í Reykjavík, greiða atkvæði. Samkvæmt því greiða þeir sem tilheyra þessum hópum og eru fæddir 1. til 15. hvers mánaðar atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem eru fæddir 16. dag mánaðar eða síðar í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Auglýsing nr. 346/2009







Erindi til landskjörstjórnar

Aðsetur landskjörstjórnar er í Kirkjustræti 8b.

Ritari landskjörstjórnar er Þórhallur Vilhjálmsson.

Tölvupóstfang: thorhallurv@althingi.is

Sími: 563 0933 / 692 3101

Póstfang:
Landskjörstjórn,
b.t. Þórhalls Vilhjálmssonar,
Alþingi við Austurvöll,
150 Reykjavík.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica