Skipan landskjörstjórnar
Skipan landskjörstjórnar:
Samkvæmt 12. gr. laga nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, kýs Alþingi eftir hverjar almennar kosningar fimm manna landskjörstjórn og jafnmarga til vara. Landskjörstjórn velur sér sjálf formann og skiptir að öðru leyti með sér verkum.
Aðal- og varamenn voru kosnir á þingfundi 11. ágúst 2009. Eftirtaldir einstaklingar sitja í landskjörstjórn:
Aðalmenn:
Ástráður Haraldsson
Bryndís Hlöðversdóttir
Hervör Lilja Þorvaldsdóttir
Þórður Bogason
Þuríður Jónsdóttir
Varamenn:
Anna Tryggvadóttir
Sigurjón Sveinsson
Hrafnhildur Stefánsdóttir
Sigurður Kári Árnason
Sólveig Guðmundsdóttir
Á fundi landskjörstjórnar 18. ágúst 2009 var Ástráður Haraldsson kosinn formaður og Bryndís Hlöðversdóttir varaformaður.
Ritari landskjörstjórnar er Ásmundur Helgason.
Starfsmaður og reiknimeistari landskjörstjórnar er Þorkell Helgason.
